Ég verð að segja að mér leist ekki á blikuna kl.6 í gær þegar við vorum skráðir 7 í leikinn.
Meiddir voru: Kristján smæl, matti, djeikob, gúmmí. Svo var Halli lasinn, skúli að vinna. Martin, rabbi, oddur og mási fluttir eitthvert erlendis. Daði komst ekki því hann er að æfa körfu

og Raggi bróðir hans lét vita á blogginu 6.mín fyrir leik að hann væri meiddur.
En þetta reddaðist nú fyrir rest og við vorum meiraðsegja með 1 varamann.
Upphitun fór öll fram þannig að við stóðum og spjölluðum um hvernig við ættum að stilla þessu upp. Jói hélt því fram að hann væri betri í vörn en ég og tók því hafsent með Helga cpt. á meðan ég vildi endilega prufa Reyni í bakverði þar sem mér gekk ekkert að sóla mig framhjá honum á síðustu æfingu, enda kom það á daginn að það var ekkert bara ég

Puffins stóð vaktina hinumegin. Á miðjunni kom Gummi sterkur inn og sá um að vera passífur og stjórna allri umferð þar í gegn, með Kristján jr. og Stebba spræka sem aldrei fyrr fyrir framan sig.
Sigurjón og Kristján sr. voru á köntunum og frammi var svo 5bi, þar sem var ákveðið vegna rúmmáls 5ba að best væri að hann þyrfti sem minnst að sinna varnarvinnu. 5bi á þó enn eftir að senda inn skaðabótakröfuna til KFC en dregur enn lappirnar vegna ástar/haturs sambands síns við þann stað.
Enn einn Sigurjóninn bættist svo við og byrjaði hann á bekk.
Eins og ég segi í hverri einustu leikskýrslu áttu sér stað ýmsar þreifingar fyrstu mínoturnar og voru Simpson menn að skapa sér nokkur færi. Puffins hafði á orði að við hefðum kanski átt að hreyfa okkur í upphitunum, enn raddböndin voru allavega vel heit og þá gerðist það einmitt að Jói snéri sér að Helga og spurði "af hverju greiðir þú þér aldrei fyrir leiki svona fínt eins og ég?" þegar hann áttaði sig á því að Homer menn voru komnir upp kanntinn og náðu að koma boltanum fyrir mark, áttu skot sem var varið, en náðu strax öðru þar sem Valur og Möffins voru að þvælast fyrir á línunni en boltinn lak inn einhverstaðar þar á milli.
Það var eitthvað svipað í seinna markinu þegar sólin var við það að setjast að Helgi kallaði til Jóa að nú væri sér að verða kalt, en þá var boltinn skyndilega kominn fyrir markið, sóknarmaðurinn fékk alltof mikinn tíma að snúa sér við, og setti hann í markið.
Það var ekki fyrr en þarna þegar Kristján jr. kallaði að við yrðum líka að skora hjá þeim að við áttuðum okkur á því og fórum að spila fótbolta. Fengum ágætis tíma á boltann og gátum byggt upp nokkrar sóknir. Kristján sr. var að valda miklum usla á kantinum og fékk ófáar aukaspyrnur ásamt að vera að búa til færi.
Sigurjón 2 átti góða spretti einnig og minnir mig að eftir einn slíkann að KHA hafi fengið víti eftir brot á honum. Sigurjón 1 var fljótur að spyrja hvort hann fengi að taka vítið eins og honum langar alltaf en gaf sig þó þar sem Stefán er í þriggja stafa tölu.
Stefán stillti boltanum á punktinn, tók sér nokkur gúmmí í munn til að smakka völlinn, hljóp að boltanum eins og blettatígur og setti þessa þvílíku negla í hornið algjörlega óverjandi fyrir markvörðinn... nema kanski hefði hann skutlað sér í rétt horn

og ætlaði öll stúkan að springa af fögnuði, og mátti meiraðsegja heyra leikmenn Hómer taka undir með áhorfendum "there´s only one Stefán Beerson"... og skal þess getið að þetta er allt saman skrifað án þess að það sé vottur af hlutlægni í undirrituðum.
Svo þegar 5bi var búinn að slá Stebba utanundir og öskra "vaknaðu" gat Homer tekið miðju.
KHA menn fengu góða innspýtingu við þetta mark og sýndu mun meiri baráttu um allan völl og pressu vel.
Svo eftir aukaspyrnu utan af kanti kom annað mark KHA. Fyrirgjöf endaði á einum gulum sem skallaði boltann útfyrir teig, þar sem 5bi stóð eins og akkeri og tók boltann á norðaustur hlutann á bumbunni. Hallaði sér til hliðar og lét vaða þenna þrumufleyg beint í stöng og inn. Þvílík sleggja sem gerir líklega tilkall til mark tímabilsins fyrir þá sem geta dæmt eftir öðru en þessum skrifum. (þið hinir skulið bara lesa aftur um vítið)
2-2 var í hálfleik (díses ég er bara hálfnaður) og vorum við Jói búnir að ákveða ýmsar breytingar á liðinu þegar Helgi kom og sagði okkur að hætta þessu bulli, við breytum engu meðan gengur vel.
Já fyrirliðar komast upp með ýmislegt og kanski var það bara ágætt því við vorum að spila feykivel í seinni líka en sprungum ekki eins og oft áður... eða bara alltaf.
Þó fengu Homer menn dæmt víti eftir einhverja snertingu hjá 5ba og mun það vera í fyrsta skipti sem dæmt er víti eftir klip í geirvörtu. Valur þóttist reyndar velja vitlaust horn, en tók handahlaup tilbaka og varði vítið með bakinu. Sem betur fer voru ekki allir frosnir eins og ég að dást hvað Valur er liðugur, svo Puffins var fyrstur á vettfang og hreinsaði boltann.
Gummi sem var að sinna mikilli vinnu á miðjunni vann boltann oftar sem áður og stakk upp á Sigurjón 2 sem geystist upp og sólaði sig upp að vítateig. Dæsti svo aðeins "úff þetta var langur sprettur" og ákvað að sendann bara fyrir. Stebbi kom vaðandi upp öskrandi á boltann "gefðá mig, ég er sjóðandi" en fyrirgjöfin var of löng... sem var ekki verra því Varnarmaður Hómer varð fyrir því láni í óláni að hitta boltann mjög illa og vippa honum yfir markmanninn og inn. Einkar vel gert hjá Helga og markið því skráð á hann.
3-2 og meiri barátta færðist í leikinn og færi á báða bóga. Hómer menn þreyttust þó ábernadi meira eftir því sem á leið enda reynslan ekki meiri en svo að þeir hituðu upp
Kristján sr. var svo að sleppa í gegn þegar hann var tekinn niður og dómarinn akkúrat að flauta þegar Stebbi kom hlaupandi að pikka upp boltann þegar sami maður dúndraði hann niður líka. Sá var með gult spjald fyrir og fékk þar með sitt annað og þriðja spjald og þarmeð rautt.
Í restina þegar spennan var að ná hámarki spurði Helgi hvað væri mikið eftir. Dómarinn svaraði 1.mín. Þá öskrar Helgi "áfram bleikir það er nóg eftir". 10sec seinna heyrist í Jóa "koma strákar áfram, það er lítið eftir" !!!!!
5bi ruglaðist alveg við þetta og skipti út fyrir Sigurjón 1
Valur tók langt útspark beint á sigurjón og þá heyrðist í Reyni "haha Grjóni í skallabolta" en Stebbi tók sénsinn og hljóp með, og Sigurjón vann skallann (face Reynir)
Stebbi fékk hann til sín og tók snertinguna innfyrir varnarmanninn, sem gerði sitt besta til að hanga í honum á meðan markmaðurinn kom í úthlaup. Stebbi var með lítið jafnvægi hlaupandi á hlið en rétt náði að spyrna framhjá markverðinum í stöng og inn.
4-2 og stúkan alveg brjáluð (sjá fyrsta mark)
Nokkrum sec seinna var leikurinn búinn og fyrsti sigur KHA í höfn (ekki á móti neðsta liðinu heldu liðinu sem er komið í bikarúrslit

)
5bi frussaði Pilsner yfir alla og við tókum hringinn meðan pabbi fór í bíó.
Það var allt annað að sjá liðið núna, enda spiluðu allir vel og baráttan var til fyrirmyndar.
Menn höfðu svo á orði að þetta væri mikið skemmtilegra en að tapa enda ætlum við líka að hætta því bara.
Svo er bara að klára síðasta leikinn
Áfram KHA